Hrunamenn
Bloggsíður leikmanna
26.05.2008 15:59:34 / Los Arnos

Æfingar

Í gær fór fram æfing, sennilega sú fyrsta í sumar. Á hana voru mættir 11 galvaskir sveinar. Það var mál manna að æfa á sunnudögum kl. 20.00 og á fimmtudögum kl. 20.30 það sem eftir lifir sumars. Hrunamenn munu ekki senda lið til leiks í Sunnlensku deildina þetta árið, en spila einhverja æfingaleiki og að sjálfsögðu stefnum við á leik við félaga okkar í FC FAME.:)

Þá er spurning um að endurvekja golfmótið góða og gera eitthvað skemmtilegt saman.

Gaman væri að heyra í einhverjum fleirum en frændum mínum hér á síðunni.:haha::haha:

Kveðja,
Árni Þór

» 8 hafa sagt sína skoðun

11.04.2008 14:54:01 / Speedy

Nýtt keppnistímabil að hefjast 2008-2008

Jæja ég ætla að byrja á að óska drengjunum í körfuboltanum til hamingju með árangurinn. Þeir eru mjög vel að þessu komnir og allt það.... :)

Þar sem ég var síðasti þjálfari liðssins þá reikna ég með því að þurfa að finna arftaka minn, því ég hef keypt upp samninginn minn og stefni á nýtt þjálfara career hérna á spáni.

Þannig að:

Það vantar þjálfara
Það vantar einhverja til að mynda stjórn
Það vantar einhvern til að taka að sér vefsíðuna
Það vantar leikmenn....

allar hugmyndir velkomnar og bara senda mér meil á formadurinn@hotmail.com eða skilja eftir sig komment hérna að neðan....
hverjir geta verið með og hverjir hugsanlega geta verið með og annað

Og svo hef ég ekki hugmynd um hvenær þarf að tilkynna um þátttöku í Sunnlensku deildinni og allt það og það þyrfti sennilega að kanna þetta.....

Kv.
Smári


» 1 hafa sagt sína skoðun

22.07.2007 15:09:33 / Kalli

Jafntefli við Ástrík

Leikur: FC Hrunamenn – Ástríkur P.Sv. 3-3 (1-1)

Tími: Föstudagurinn 20. júlí 2007

Leikstaður: Flúðir

Áhorfendur: Í kringum 15

Veður: Blautt en hlýtt.

Dómari: Stefán Magni

Línuverðir: Hrunamenn.

Mörk: Jóhann Halldór Sigurðsson, Kristján Geir Guðmundsson og Bogi Pétur Eiríksson (Hrunamönnum). Egill Gestsson, Jón Rúnar Gíslason og Þórður Jóhann Guðmundsson (Ástrík)

Gul spjöld: Enginn

Rauð spjöld: Enginn

 

 

Bæði lið byrjuðu leikinn af mikilli varkárni þar sem völlurinn var nokkuð sleipur og áttu menn oft erfitt með að fóta sig í bleytunni. Upphafsmínúturnar einkenndust þar af leiðandi af slökum sendingum og skiptust liðin á að hafa boltann. Það var þó snilldarsending sem kveikti aðeins í leikmönnum en þá átti leikmaður Ástríks frábæra sendingu inn fyrir vörn Hrunamanna sem Jón Rúnar náði og lagði boltann laglega í markið. Hrunamenn voru þó ekki lengi að svara fyrir sig, þeir tóku miðjuna og frá henni barst boltinn út á kantinn þar sem kom lagleg sending fyrir markið og Jóhann Halldór kláraði færið mjög örugglega. Staðan var því jöfn 1-1 í hálfleik.

 

Síðari hálfleikurinn byrjaði aðeins fjörlegar en sá fyrri og það voru nokkur hálffæri á báða bóga. Ástríkur fékk þó dauðafæri mjög fljótlega en markvörður Hrunamanna greip vel inni og stöðvaði sóknina. Ástríksmenn áttu snarpa sókn upp vinstri kantinn þegar hálftími var liðinn af seinni hálfleik sem endaði með góðu marki frá Agli. Við þetta mark færðist mikið fjör í leikinn og Hrunamenn fóru að sækja af fullum krafti og náðu að jafna metin fimm mínútum síðar en þá höfðu þeir fengið horn og boltinn barst þá út fyrir teiginn þar sem Kristján Geir var búinn að koma sér vel fyrir og skoraði með glæsilegu skoti í bláhornið. Hrunamenn virtust fá enn meira sjálfstraust við þetta og skömmu síðar átti Kristján aftur skot sem fór rétt framhjá marki gestanna. Stuttu eftir það vinna Hrunamenn svo aftur hornspyrnu þar sem Bogi Pétur stekkur manna hæst og skallar boltann í markið og staðan orðin vænleg fyrir heimamenn. Ástríkur var þó ekki lengi að svara þessu og náðu að jafna metin eftir að Þórður Jóhann hafði farið upp hægri kantinn og átti skot/sendingu sem endaði í marki heimamanna. Lokamínúturnar einkenndust af miklu fjöri þar sem Hrunamenn settu alla nema einn í sókn og sóttu stíft. Hrunamenn fengu tilvalið tækifæri að gera út um leikinn á lokamínútunni þegar þeir fengu aukaspyrnu rétt fyrir utan teig. Aukaspyrnan var mjög góð og Ástríksmenn náðu ekki að bægja hættunni frá og boltinn rúllaði fyrir framan markið þar sem þrír Hrunamenn voru en á einhvern ótrúlegan hátt hitti enginn þeirra boltann. Lokastaðan því 3-3 og má segja að leikurinn hafi verið nokkuð skemmtilegur og opinn og þá sérstaklega í seinni hálfleik.

Hrunamenn: Ásbjörn Örvar, Bergsteinn, Bogi Pétur, Guðmundur Karl, Hákon, Jóhann Halldór, Jón Gunnar, Jón Þorgeir, Karl Ágúst, Kristján Geir, Ólafur Bjarni, Sigurður, Kramer og Alexander.

 

Ástríkur: Björn Emil, Egill, Finnur, Hafþór Gylfi, Hrannar Árni, Jón Hilmar, Jón Rúnar, Kristinn Sveinn, Hannes Ólafur, Sindri Freyr, Steinn, Tómas Héðinn, Þór, Þórður Freyr, Jón Þór og Þórður Jóhann.

 

Einnig urðu þjálfaraskipti eftir leikinn og tók Smári við stjórninni og vil ég nota tækifærið og óska honum góðs gengis. Einnig vil ég taka það fram að hann ásamt nokkrum öðrum hafa staðið sig frábærlega í sumar hvað varðar mætingar og tilkynningar og vonandi að fleiri fari að taka þennan kjarna sér til fyrirmyndar.


» 3 hafa sagt sína skoðun

11.07.2007 23:01:37 / Los Bjarkos

Útlagabikarinn

Ég var að fatta það að okkar árlegi Útlagabikar fer að skella á. Hingað til hefur þriðja helgin í júlí verið fyrir valinu og nú þurfum við að sjá hvaða dagsetningar henta okkur og FC Fame til þess að við getum haldið þessari hefð okkar.

 Við höfum tapað bæði skiptin sem spilað er um bikarinn, fyrra skiptið vorum við niðurlægðir en síðast vorum við óheppnir að tapa. Í ár ætlum við að vinna þetta strákar!

En hvenær er hægt að hafa leikinn að ykkar mati? Mikilvægt að fá svör sem fyrst.


» 1 hafa sagt sína skoðun

07.07.2007 12:44:05 / Kalli

Góður Sigur á móti UMFG

Leikur: FC Hrunamenn – UMFG 3-2 (2-1)

Tími: Fimmtudagurinn 5. júlí klukkan 20:00

Leikstaður: Flúðir.

Áhorfendur: Þónokkrir.

Veður: Veðrið var með haustlegasta móti í þetta skiptið.

Dómari: Heimir málari.

Línuverðir: Hrunamenn sáu um það.

Mörk: Smári Kristján Magnússon, Jóhann Halldór Sigurðsson og Guðmundur Karl Eiríksson (Hrunamenn), Andri Haraldsson og Gylfi Sigríðarson (UMFG)

Gul spjöld: Enginn.

Rauð spjöld: Guðmundur Stefán Guðmundsson (UMFG)

 

 

Heimamenn byrjuðu með miklum látum og uppskáru færi strax á upphafsmínútum leiksins þegar Smári braust í gegn eftir fallegan einleik og setti boltann snyrtilega í markið. Markið þótti þó mjög umdeilt þar sem varnarmaður og Smári hlupu saman og varnarmaðurinn datt en ekki Smári. Gestirnir reiddust mjög og þá helst þeir sem voru lengst frá atvikinu. Dómari leiksins reyndi að stöðva lætin í fæðingu en var það sem að olíu hefði verið skvett á eldinn og endaði það með því að liðstjóri gestanna var rekinn af leikvellinum með rautt spjald. Þetta virtist sitja mjög í gestunum það sem eftir lifði hálfleiksins og heimamenn sóttu þónokkuð og skoruðu fallegt mark um miðjan hálfleikinn þar sem Mummi dró sig vel út á kantinn, tók menn á og sendi fyrir þar sem Jóhann kom á ferðinni og skoraði. Eftir seinna markið var sem leikmenn UMFG áttuðu sig á að þeir hefðu verk fyrir höndum og fóru að halda boltanum betur og skoruðu laglegt mark eftir fallega stungusendingu frá Villa, Andri Haraldsson stakk sér á eftir boltanum, lék honum framhjá Óla sem var kominn framarlega í teignum og skoraði í autt markið. Lítið annað gerðist markvert í fyrri hálfleik.

 

Síðari hálfleikur var nokkuð daufari og fengu nokkrar misfallegar tæklingar að líta dagsins ljós en oftast voru þær óviljaverk og menn aðeins hægari heldur en þeir voru fyrir tveimur árum. Hrunamönnum tókst þó að skora eftir að boltanum hafði verið stungið inn á Mumma og hann náði að klára færið vel að hætti þeirra bræðra. Einnig átti hann fallega aukaspyrnu sem var varin vel í slánna og yfir. UMFG fengu gott færi til að minnka muninn þegar sóknarmaður þeirra slapp einn innfyrir en skaut boltanum rétt framhjá. Markmaður Hrunamann meiddist svo fljótlega eftir þetta færi og þurftu þeir þá að setja Stjána miðvallarleikmann sinn í markið og tók hann við þar sem Óli hafði hætt og greip nokkrum sinnum vel inn í. Hann átti þó ekki möguleika í síðara marki UMFG en þá komst hægri kantmaður þeirra innfyrir bakvörðinn og var felldur og því dæmt aukaspyrna. Gylfi Sigríðarson sveiflaði vinstri fætinum og boltinn flaug laglega í mark heimamann. Gestirnir reyndu svo hvað þeir gátu til þess að jafna leikinn en langskot þeirra fóru yfirleitt vel framhjá marki heimamanna og má segja að úrslitin hafi verið nokkuð sanngjörn þó að með smá heppni hefðu gestirnir getað náð fram jafntefli.

 

Nú er bara að halda áfram á þessari braut og ekki væri verra ef menn færu að mæta reglulega á æfingar, það sést að þeir sem eru að mæta eru að ná vel saman og spilið minnir oft á brassabolta þeirra á milli. Næsti leikur á móti Drang næsta laugardag þar sem við ætlum okkur ekkert nema sigur.


» 3 hafa sagt sína skoðun

02.07.2007 17:58:00 / Kalli

Jafntefli við Börn Náttúrunnar

FC Hrunamenn – Börn Náttúrunnar 1-1 (0-0)

Tími: Föstudagurinn 29. júní klukkan 20:00

Leikstaður: Flúðir

Áhorfendur: 25 +/- 20

Veður: Veðursældin hélt áfram að leika við menn á Flúðum.

Dómari: Jóhann Pétur

Línuverðir: Hrunamenn sáu um það og mætti Gunni Body á línuna og sýndi mönnum hvernig á að lyfta flaggi.

Mörk: Bogi Pétur Eiríksson (Hrunamenn) og Birgir Alexandersson (Börn Náttúrunnar)

Gul spjöld: Smári Kristán Magnússon (Hrunamönnum), Steinar Hermann Ásgeirsson og Sigurjón Viðar Svavarsson (Börnum Náttúrunnar)

Rauð spjöld: Enginn

 

 

Gestirnir komu ákveðnir til leiks og staðráðnir í að hefna ófaranna frá bikarleiknum þar sem sömu lið áttust við fyrir innan við viku síðan. Börn Náttúrunnar tóku öll völd á vellinum á upphafsmínútunum og nýttu sér vandræðagang í vörn heimamanna. Þrátt fyrir mörg hálffæri tókst þeim ekki að koma knettinum í netið. Þegar líða tók á fyrri hálfleikinn jafnaðist leikurinn nokkuð en spilamennskan var ekki upp á marga fiska þar sem markmiðið virtist vera að sparka boltanum sem lengst og reyna að elta hann uppi með misgóðum árangri. Einnig duttu menn niður í tuð og leiðindabrot á lokamínútum hálfleiksins. Staðan 0-0 í hálfleik þegar menn gengu til tedrykkju.

 

Hrunamenn byrjuðu síðari hálfleikinn mun betur og oft mátti sjá lipurt spil. Gestirnir vörðust hins vegar vel og beittu eitruðum skyndisóknum og upp úr einni slíkri kom einmitt fyrsta mark leiksins. Leikmenn Barnanna sóttu þá upp hægri kantinn og áttu góða fyrirgjöf sem varnarmenn heimamanna náðu ekki að hreinsa frá. Hins vegar var það einn leikmanna gestanna sem var rétt staðsettur og náði hann að leika knettinum fram hjá Sigurði Sigurjónssyni sem sópaði “snyrtilega” undan leikmanninum og réttilega dæmd vítaspyrna. Birgir Alexandersson steig á punktinn og skoraði örugglega í mark heimamanna. Fyrsta mark leiksins orðið staðreynd og kom það eftir 67 mínútna leik. Eftir markið duttu gestirnir vel til baka og heimamenn sóttu mikið og uppskáru mark á 75. mínútu og var það Bogi Pétur, aðalmarkaskorari Hrunamanna sem það skoraði. Markið kom upp úr lipru spili og nákvæmri sendingu inn á Boga sem skoraði af miklu harðfylgi. Heimamenn áttu einnig tvö stangarskot af löngu færi sem bæði komu frá varnarmönnum, annað átti Sigurður Sigurjónsson þegar hann tók aukaspyrnu rétt hjá miðju. Hitt átti hinn ungi og markagráðugi Hákon Aðalssteinsson. Einnig fengu bæði lið hálffæri á lokasprettinum en inn vildi boltinn ekki og niðurstaðan því jafntefli og má segja að þau úrslit hafi verið nokkuð sanngjörn.

Leikmenn Hrunamanna: Atli, Bergsteinn, Bogi, Mummi, Hákon, Kalli, Stjáni, Óli, Ricardo, Siggi, Smári og Sibbi.


» 1 hafa sagt sína skoðun

11.06.2007 00:17:20 / Los Arnos

Hrunamenn áfram í bikar

FC Hrunamenn – Ástríkur P.Sv.

1-0 (1-0)

Tími: Fimmtudagur 7.júní 2007

Leikstaður: Flúðir

Áhorfendur: Vel á annan tuginn.

Veður: Nokkuð stillt og fallegt veður

Dómari: Marínó Fannar Garðarsson

Línuverðir: Hrunamenn sáu um það.

Mörk: Bogi Pétur Eiríksson

Gul spjöld: Smári Kristján Magnússon (Hrunamönnum)

Rauð spjöld: Sindri Freyr Róbertsson (Ástrík)

 

 

Hrunamenn byrjuðu leikinn mjög sterkt og stjórnuðu spilinu framan af leik. Jói og Jón Gunnar fengu báðir ágætis færi til að koma Hrunamönnum yfir, en náðu þó ekki að nýta sér það. Ástríksmenn voru frekar bitlausir fram á við og áttu varnarmenn Hrunamanna ekki teljandi vandræðum með sóknarmenn Ástríks í fyrri hálfleiknum. Hrunamenn fengu þónokkuð af hornspyrnum í fyrri hálfleiknum og úr einni slíkri skoraði Bogi Pétur með bylmingsskalla sem þandi út netmöskva gestanna. Ekki gerðist fleira markvert í fyrri hálfleiknum og menn héldu á rólegu nótunum í tepásu.

Í síðari hálfleiknum hresstust Ástríksmenn nokkuð og sköpuðu sér fleiri færi en í þeim fyrri. Raunar gerðu Hrunamenn það líka og hefði leikurinn hæglega getað endað á annan hátt en hann gerði svo að lokum, hvað markatölu varðar, en sigur Hrunamanna var sanngjarn. Mjög opnum síðari hálfleik lauk markalaust þrátt fyrir nokkur dauðafæri Hrunamanna, stangarskoti gestanna og stórgóðri markvörslu Óla Hrunamanns sem þurfti að fara vel út fyrir teig til að bjarga sínum mönnum. Eitthvað leddist mönnum góða veðrið á Flúðum og fóru eitthvað örlítið að kíta, þó svo það hafi verið í lágmarki. Smári Kristján fékk gult spjald fyrir óþarfa brot og Sindri Freyr fékk réttilega að líta rautt spjald eftir stutta dvöl á vellinum. Viðskiptum hans við Hjálm Hjálmsson, hinn snaggaralega vinstri vængmann Hrunamanna, lauk því miður með hnefatali og því ekkert annað í stöðunni fyrir ágætan dómara leiksins en að sýna Sindra rautt og hvítt svitaband.

Sanngjarn sigur að baki að mínu mati og hefði hann hæglega getað orðið stærri. Það skiptir hins vegar engu máli því sigur er sigur!
Lið Hrunamanna var þannig skipað: Atli, Árni, Bogi, Bragi, Mummi, Hákon, Jói, Jón Gunnar, Kalli, Óli, Ricardo, Sigfús, Smári, Sibbi og Svavar Geir.
Punktar...
Árni Þór var fyrirliði
Siggi tók út leikbann
Kalli stjórnaði sínum fyrsta leik
Bogi er búinn að skora 4 mörk í sumar
Hvorki Óli né Himmi hafa þurft að hirða boltann úr netinu í sumar
Smári fékk gult
Svavar Geir, Kalli, Hjalli og Árni léku sinn fyrsta leik í sumar
Næsti leikur er 13.júní gegn meisturum Flóa á útivelli

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

04.06.2007 11:51:41 / Los Bjarkos

Nokkur vel valin orð

Nú er deildin byrjuð og ekki annað hægt að segja en að við höfum byrjað af krafti og gefið skýr skilaboð um hvað koma skal í sumar.

 Hinsvegar megum við ekki láta blindast af úrslitum fyrsta leiks og halda okkur niðri á jörðinni, einn leikur er að baki og átta eftir í deild og vonandi sem flestir í bikar. Augu okkar standa föst á öllum þeim silfurbúnaði sem í boði er og til að ná markmiðum okkar verðum við að halda einbeitingu allan tímann.

 Þetta sumar hafa menn eins og Jón Einar, Maggi Gunnlaugs og René horfið á braut (vonandi gleymi ég engum) og ný andlit eins og Jóhann Halldór og Bragi Viðar komið inn í liðið og loksins erum við komnir með annan markvörð (þ.e.a.s. nr 2) en hann Himmi okkar verður meira með en undanfarin ár. Þá eru fleiri ungir strákar sem að munu gegna veigameira hlutverki í sumar en áður, Mummi og Hákon löggubani gegndu báðir lykilhlutverki í leiknum gegn Hvöt.

 Því miður hef ég ekki getað séð mér fært að mæta á margar æfingar í vor vegna gríðarlegra anna í vinnu og ég er hræddur um að svo muni verða áfram í sumar. Ég tel að þetta veiki liðið í heild ekki svo mikið inni á vellinum þar sem ég hef oftast staðið á hliðarlínunni í leikjum og æpt einhverja vitleysu inn á völlinn, flestum öllum til ómældrar gleði, ánægju og yndisauka.

 Vegna þessa miklu anna hef ég ákveðið að taka mér hvíld frá virkri stjórnun liðsins um óákveðinn tíma og vera aðeins fyrirferðarminni (ef það er þá hægt í mínu tilviki). Þó vil ég benda á að ég er meira en tilbúinn til þess að taka þátt í að skipuleggja hluti eins og golfmót, liðspartý og lokahóf o.þ.h. auk þess sem ég ætla að reyna eftir fremsta megni að mæta á æfingar og leiki þegar ég get.

 Ef þið leyfið mér þá langar mig einnig til að halda áfram að skrifa pistla inn á heimasíðuna okkar, gáfulega sem og ógáfulega.

 Þar til að ég treysti mér aftur til að taka aftur við þeim störfum sem ég hef gegnt hingað til, vil ég nota tækifærið og þakka fyrir mig og segja hvað ég er ánægður með að eiga þátt í að koma Hrunamönnum á blað sem eitt af sterkari liðum deildarinnar og sýna þar með og sanna að nóg er af góðum náttúrulegum íþróttamönnum hér í sveit.

 Í lokin langar mig að minnast á að mig hefur lengi langað til að Hrunamenn eigi sér mottó, Liverpool hefur sitt mottó “You’ll never walk alone” og Everton á sitt “Nil Satis Nisi Optimum” sem myndi þýðast á okkar ástkæra ylhýra: “Aðeins það besta er nógu gott” (sem þó hefur glatað merkingu sinni þar sem Everton eru hundlélegir :haha: )

En í ljósi þess legg ég til að mottó Hrunamanna verði: “Beztir í heimi”

Gangi okkur sem allra best á þessu tímabili, áfram Hrunamenn!

M.b.k. 

Bjarki Eiríksson


» 5 hafa sagt sína skoðun

03.06.2007 17:52:56 / Los Arnos

Fyrsta leik lokið!

:D8):lol::):haha:8|;)

 

Hrunamenn - Hvöt

 

9-0

 

Markaskorarar

 

Bogi 3

Mummi 2

Stjáni

Smári

Jón Gunnar

Jói

 

 

Siggi Rautt

 

 

Hákon var fyrirliði

 

Glæstur sigur í fyrsta leik og næsti leikur verður á Flúðum fimmtudag kl. 20 í bikarnum gegn Ástrík.


» 4 hafa sagt sína skoðun

21.05.2007 22:34:13 / Los Arnos

Styttist í sumar...

Nokkrir leikmenn Hrunamanna fóru á Hraðmót Sunnlensku deildarinnar sem haldið var sl. sunnudag á Stokkseyri. Alls voru þetta 9 stykki sem mættu og eiga heiður skilinn fyrir sitt framlag. Þeir sem mættu voru Árni, Bergsteinn, Bogi, Jói, Jón Gunnar, Jón Þorgeir, Siggi, Smári og Örvar. Leiknir voru 4 leikir og ekki er hægt að segja að Hrunamenn hafi riðið feitu hrossi frá þessu móti. Leikirnir voru mjög stuttir, aðeins 10 mín. og var leikinn 7 manna bolti. Engu að síður þótti mönnum mjög gaman að fá smá tilbreytingu frá æfingunum og á köflum sáust ágætis tilþrif. Að mínu mati vorum við sterkari aðilinn í þremur leikjum, þ.e. gegn Flóa, Hvöt og Gnúpverjum en því miður fóru of mörg góð færi forgörðum. Úrslit leikja voru annars:

Hrunamenn - FC Flói 0-2

Hrunamenn - Hvöt 1-1

Hrunamenn - UMFG 0-0

Hrunamenn - Drangur 0-2

 

Framundan er svo spennandi sumar þar sem leiknir verða 9 leikir í deild og vonandi nokkrir í bikar. Búið er að draga í deild og bikar og er planið á þessa leið hjá okkur:

Hrunamenn - Hvöt (á að fara fram í kringum 2.júní)

Flói - Hrunamenn

Hrunamenn - Börn náttúrunnar

Hrunamenn - Gnúpverjar

Drangur - Hrunamenn

Hrunamenn - Ástríkur

Bjórvömb - Hrunamenn

Hrunamenn - Biskup

Hnohni - Hrunamenn

Það er því ljóst að fimm deildarleikir verða leiknir á Flúðum. Við skellum okkur einu sinni til Víkur, einn leikur verður hjá okkur í Hveragerði og ég reikna með að leikirnir gegn Flóa og Hnohna verði einhvers staðar við ströndina. Nýju liðin frá því í fyrra eru Hvöt og Björvömb. Hvöt er aðallega skipað strákum úr Grímsnesinu og við lékum við þá á Hraðmótinu. Bjórvömb er einhvers konar b-lið Hamars sem leikur í 3.deild. Hin liðin þekkjum við öll frá fornri tíð.

Í bikarkeppninni drógumst við gegn Ástrík og á leikurinn að fara fram á Flúðum 4.-8. júní. ef við vinnum þann leik fáum við útileik gegn Börnum náttúrunnar í 8-liða úrslitum.

 

Ég stefni á fund í vikunni, sennilega bara eftir æfingu á morgun, væri það ekki bara fínt???

Áfram Hrunamenn


» 4 hafa sagt sína skoðun

06.05.2007 18:40:21 / Speedy

GLORY GLORY MAN UNITED

:klikk::klikk::klikk::klikk::klikk::klikk: 

Jæja... til hamingju stuðningsmenn united með Englandsmeistaratitilinn. þetta hefur líka verið sigur fyrir alla áhugamenn um knattspyrnu þar sem united hefur spilað langskemtilegasta boltan í vetur, að öðrum ólöstuðum. vil ég benda á markatöluna og vitna í kaká því til stuðnings en hann sagði einmitt að United spilaði sambabolta og hann gæti vel hugsa sér að spila með united.

 

en nú er framundan úrslitaleikur í FA cup og að sjálfsögðu úrslitaleikurinn í meistaradeildinni og það verða svakalegir leikir og spurning hvort við ættum ekki að smala liðinnu saman til að horfa á þessa leiki og hafa svolítið gaman af þessu. ;)

 

"Stand up for the champions" 

 

:klikk::klikk::klikk::klikk::klikk::klikk: 


» 4 hafa sagt sína skoðun

23.04.2007 23:37:39 / Los Arnos

Krían er komin!

Sumarið nálgast hratt og gott væri að heyra í mönnum varðandi væntingar í sumar. Hvert vilja menn stefna, með hvaða hætti á að gera það og hverjir eru klárir í slaginn? Sl. sumar var leikmannahópur okkar á þessa leið:

Atli Örn, Árni Þór, Bergsteinn, Birgir, Bjarki, Bjarni Már, Bogi, Erlingur, Mummi, Haukur, Hákon, Hjálmur, Jón Gunnar, Jón Einar, Jón Þorgeir, Karl Ágúst, Kjartan, Kristján Geir, Magnús , Máté, Oddur, Orri, Óli, Réne, Rúnar, Siggi, Smári, Snorri, Stefán Magni og Svavar Geir.

Ég veit svo sem ekki stöðuna nógu nákvæmlega og óska því eftir að þið upplýsið mig um hverjir eru klárir í sumar.

Þó er ljóst að menn eins og Réné, Jón Einar, Kjartan, Stefán Magni og Snorri munu lítið koma við sögu hjá okkur í sumar! Þá eru þarna fleiri nöfn sem þarf að skoða betur...

Þó má reikna með einhverri nýliðun og þá eru það líklega ungir strákar sem munu detta inn hjá okkur.

Þá vil ég benda á að okkar félag er algerlega háð áhuga og virkni félaganna. Þess vegna hvet ég sem flesta til þess að mynda sér skoðun varðandi sumarið og ekki vera feimnir við að pósta.

 


» 6 hafa sagt sína skoðun

17.04.2007 20:47:59 / Speedy

Nýjir æfingartímar

Fyrir gamlingjan í liðinu hefur verið ákveðið að setja tímana hér inn

 

Þriðjudaga: 19:00

Fimmtudaga: 19:00

Laugardaga: þegar útlaganum lokar

Sunnudaga: 19:00

 

Gaman væri að fá að heyra hvort menn séu til í einhverja æfingaleiki og þá við hverja. það eru allmörg lið í rvk sem eru til í að spila leiki og eru með velli í bænum sem þeir nota reglulega..

nýtt síson byrjar líkast til í lok maí og það er ekki langur tími þangað til :D

kiss kiss

        Speedy
 


» 5 hafa sagt sína skoðun

16.01.2007 13:37:37 / Los Arnos

Fundur sl. fimmtudag

Sl. fimmtudagskvöld átti sér stað laufléttur fundur um málefni knattspyrnufélagsins okkar. Þeir sem fundinn sátu voru Árni Þór Hilmarsson, Bjarki Eiríksson, Ólafur Bjarni Sigursveinsson, Smári Kristján Magnússon og Sigurður Sigurjónsson. Ýmislegt var rætt á fundinum og nokkrar ákvarðanir teknar. Í fyrsta lagi var ákveðið að taka þátt í Visa-bikarnum næsta sumar, en bíða með þátttöku í 3.deild karla enn um sinn. Varðandi þátttöku í fleiri mótum þá erum við að velta fyrir okkur utandeildinni í Reykjavík, en einnig er gamla góða Sunnlenska deildin inni í myndinni hjá okkur. Þessi mál verða skoðuð á næstu dögum og vikum.

Varðandi æfingar þá ætlum við að hittast á þriðjudags- og fimmtudagskvöldum úti á sparkvelli og verða nákvæmari tímasetningar ákveðnar af þeim sem eru duglegastir að mæta. Æfingin í kvöld verður kl. 18.30. Þá stendur okkur til boða inniæfing á sunnudögum frá kl. 17.30-19. Er einhver áhugi fyrir því?

Fleira var rætt, t.d. æfinga- og skemmtiferðir, hugsanleg kaup á utanyfirgöllum o.fl.. Fundi var slitið eftir góðar og þarfar umræður.

Ég hvet menn til að mæta í kvöld.

Áfram Hrunamenn!

» 8 hafa sagt sína skoðun

09.01.2007 10:33:03 / Los Bjarkos

Bikar o.fl.

Einn kommentaði síðustu færslu! Lélegt.

Annars vil ég fá viðbrögð manna við þátttöku í Visa Bikarnum. Umsóknarfrestur rennur út 20. janúar, eftir 11 daga.

Svo er Icelandair Open 2007 í Kaupmannahöfn haldið 3. mars. Fyrstu liðin sem staðfesta þátttöku fá farmiðana á góðum kjörum. Hvað segið þið? Þetta er innanhúsmót.

Vildi bara nefna þetta, smá bjartsýni og klikkun í gangi... en samt, alltaf gaman að svona ;)

Komment please!
 

» 6 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 13